23.8.02

Jamm --- lífið heldur árfram og flest þróast. Líka heimasíða Hjartar þar sem byltingin heldur áfram. Í staðinn fyrir tilvitnanir í fólk sem segir hvort sem er ekkert af viti er nú kominn dálkurinn 'Bókin' sem sýnir hvaða bók er efst á náttborðinu hjá mér hverju sinni. Þetta er sum sé í takt við ritstjórnarstefnulið númer 5. Helter Skelter segir sum sé frá Mansonmorðunum sem einhverjir kannast kannski við. Bókina ritar aðalsaksóknarinn í málinu á sínum tíma og segir bókin nokkuð nákvæmlega frá rannsókn málsins og réttarhöldum. Þessa bók hef ég lesið með köflum síðustu átta árin eða svo. Ég notaði hana upphaflega sem strætóbók þegar ég vann hjá Vífilfelli eitthvert sumarið og svo aftur þegar ég vann á sambýli í Breiðholtinu. Svo hætti ég að taka strætó fyrir nokkrum árum og því voru ekki not fyrir bókina í dágóðan tíma. Svo flutti ég á Hallveigarstíginn síðasta vetur og enduruppgötvaði ég þá bókina. Nú hef ég verið að blaða í henni öðru hvoru og stefni á að klára hana fyrir næstu jól. Ég hugsa að það takamark náist og vel það. En bókin er góð þrátt fyrir að ég hafi ekki klárað hana strax sumarið 1994.
foss -, -ar KK vatnsfall, þar sem á eða fljót steypist fram af klettum að elta fossa að breyta vitlaust, gera einhverja vitleysu hættu að elta fossa og haltu þig við árnar og lækina vertu ekki að þessari vitleysu og hagaðu þér eins og maður -> fossaelting, fossaeltun, fossasig

21.8.02

Mummi fer á morgun. Í gærkvöldi kvaddi ég hann með tilheyrandi kollu á Ara og svo ágætis djammi frameftir nóttu á heimili hans. Um klukkan hálf fjögur kvaddi ég kauða og hef ekki séð hann síðan. Um svipað leyti virðist aðgangur minn að heimasíðu hans hafa lokast. Því bið ég Mumma vel að lifa

Annars er mér fyrirmunað að nýta annarsskonar póstþjóna en Outlook Express til að rýna í Hotmail-póstinn minn. Þetta hlýtur að vera eitt af viðurstyggilegum brögðum Bill Gates og félaga í Míkrósoft. Nú er mér nóg boðið. Frá og með næstu mánaðarmótum mun ég hætta að nota Hotmail draslið. Megi Bill fara til fjandans með allt sitt hafurtask!

20.8.02

Hér er bloggað samkvæmt lið 4:

Að sjálfsögðu spila ég dagskrá næstu tveggja daga eftur stundaskrá Mumma. Það er jú altént hann sem er að flytja í nýja heimsálfu (að því gefnu að við séum ekki hreinlega stödd í Ameríku verandi rótföst við ameríkuflekann fræga). Svo latenight krús með tilheyrandi skilum á útilegugræjum er gjörsamlega opsjón hjá mér. (Þetta rita ég svona á meðan ég kíki með öðru auganum á GSM-símann minn sem einmitt geymir símanúmer Mumma í minni sínu - merkilegur andskoti).
Þegar ég kom mér upp þessari bloggogvitleysusíðu var ætlunin að nota þann vettvang fyrir heimspekilegar og pólítískar hugmyndir mínar. Fljótlega fór mér að leiðast að skrifa eitthvað gáfulegt á hverjum degi enda er mun skemmtilegra að finna upp eitthvað heimskulegt og vitagagnlaust. Því hefur orðið minna úr göfugum fyrirætlunum mínum en efni stóðu til í upphafi. Engu að síður hefur aðdáendahópurinn síst minnkað og á hverjum einasta degi rata inn á síðuna mína saklausar sálir sem lesa þessi innihaldslausu skrif mín um nákvæmlega ekki neitt.

Aftur á móti mun nú gerð bragarbót á og frá og með þessari stundu verður tekin upp ný ritstjórnarstefna á veftímaritinum - byltingin heldur áfram - Þannig hefur verið ákvarðað fimmþætt markmið bloggvitleysunnar:

1. Að varpa fram vangaveltum mínum um þjóðfélagið, hnignun þess og upprisu, leiðir til úrbóta og illútskýranlegri væntumþykju minni um það þrátt fyrir allan sorann.

2. Að vera vettvangur skrifa minna um ýmis atriði er varða íslenska málfræði og jafnvel þjóðfræði almennt ef skap mitt segir svo um.

3. Að vera miðill skítkasts og gagnrýni á hægrimenn á íslandi og þá frjálshyggju sem margir þeirra aðhyllast.

4. Að vera samræðuvöllur við vini mína og kunningja og leysa að nokkru leyti af hólmi annars ágætan samskiptamáta sem símtöl, tölvupóstur og persónulegt spjall er.

5. Að vekja athygli á ágæti mínu og veita forvitnum lesendum ofurlitla innsýn í yndislegt líf mitt.



Það er því með þessi markmið í huga sem eftirfarandi færsla sem framkvæmd og markar hún upphaf skrifa undir nýrri ritstjórnarstefnu. Í þetta sinn er skrifað eftir markmiðum 2 og 5 sum sé málfæðivangaveltum og umfjöllun um hvað ég hef fyrir stafni þessa dagana:


Nýverið tók ég að mér það stórvirki í aukavinnu að lesa prófarkir íslenskrar orðabókar. Var mér úthlutað stafnum bé til að byrja með. Því fer stór hluti daga minna í að lesa yfir stórskemmtilegar flettur þar sem orð eins og bókvit, brókarsótt og böllur eru útskýrð. Reyndar verður að segjast að hér er síst um skemmtilestur að ræða og þar sem mestmegnis er rýnt í greinamerki og leturgerð fer merking orðanna nokkuð fyrir ofan garð og neðan og er augljóst að orðaforði minn mun ekki koma til með að aukast mjög eins og ég hélt í fyrstu. Hins vegar hefi ég tekið þá ákvörðun eftir fyrstu atrennu við lesturinn að rita í framtíðinni peisa svo; með i en ekki y eins og mér hefur í raun verið kennt. Hvernig í ósköpunum ég fór að því að taka þá ályktun eftir að hafa lesið b-hluta íslenskrar orðabókar mun ég útskýra á næstu dögum enda ku það vera merki um vel heppnuð skrif sé lesandinn skilinn eftir í angist fullur tilhlökkunnar yfir því sem koma skal. Einnig um ég fjalla lítillega um hjálparsögnina ku í næstu framtíð. Lifið heil.

Mummi að fara eftir tvo daga ?! Ætli hann hafi tíma til að hitta mig áður en hann fer? Kannski yfir svo sem einni krús? Rallarrei

19.8.02

Guðni Ágústsson fer á kostum. Í þetta sinnu erum við Guðni sammála - að mestu.
Í gær var sunnudagur... á sunnudögum er gott að fara í bíó. Í þetta sinn Minority Report. Í einu orði sagt: Frábær! Það var svo ekki fyrr en í endann að ég áttaði mig á að myndin er byggð á sögu Philip K. Dick - sem einmitt á heiðurinn af afbragðs vísindaskáldsögum eins og Blade Runner og Total Recall.