10.5.02

Sir Paul McCartney var víst hjá Leno um daginn með nýju kærustunni - hún er víst voða sæt og með gervifót - og auðvitað þarf hún að vera einn helsti talsmaður gegn jarðsprengjum síðan Díana drapst. - ha, hann þarf nefnilega alltaf að finna sér einhverjar skvísur með attitjút - Ég spyr afhverju getur sir Paul ekki bara fundið sé normal konu sem borðar kjöt og fílar jarðsprengjur!?
Hmmm - ætti maður að taka áskorun Gúnda???
Eins og Mummi fjallar um töpuðum við aftur í Axis - þrátt fyrir að Þorri hafi nánast gefist upp á tímabili. Hver veit, kannski má skrifa það á hrokann í Mumma. Engu að síður var taktíkin rétt hjá Þorra að pakka sér saman í vegi fyrir Kananum og sigla svo með offorsi í Indverjann. Mér líkar hvernig spilið tekur nýja vinkla í hvert sinn sem við spilum. Gerir það skemmtilegra að tapa. --- Nú eru örugglega einhverjir sem lesa þetta að spá - hvaða nörrar eru þetta eiginlega og um hvað eru þeir að tala - en það er líka alveg rétt - við erum AXISNÖRRARNIR
Hvað er í gangi hér? Afhverju eru þær ekki berfættar, eða amk í sandölum. Mér finnst hreinlega asnalegt að ganga um á bikiní í háhæluðum skóm - hvað þá í hvítu bikiníi og svörtum skóm!!!. Ég meina - show a little respect sko! Annars finnst mér nú Tyson-stelpan sætust.

8.5.02

Haldiði að ég hafi ekki bara verið að fatta að það er frídagur á morgun!!! Þannig að í tilefni af því er ég barasta farinn heim - jamms --- éferífríið, éferífríið, éfeeer í fríið - éferífríið, éferífríið éferífríið!
Þessar myndir eru teknar í Skuggahverfinu. Þar þarf sko að taka til hendinni. Hmm - og jú, það er akkúrat á stefnuskrá R-listans.
Mummi! Ég er geim í spil (eða spil í geim) ef þú lagar linkinn á T10 listann hjá mér. Vantar eitt edl í endann.
Ég hef verið að leita út um allt að svona Lewis gallabuxum eins og helgabi talar um - finn bara einhverjar eftirlíkingar sem kallst Levi's. Hinsvegar fann ég ágætis Lewis bol - kannski að Helga geti farið í honum til Begga!?
Ánægjulegt að sjá að thorworks hefur fellt brott umtalað -n- í færslu sinni í gær eftir athugasemdir Ármanns, meira að segja stóra í-ið er farið líka. Svo virðist sem prófarkalestur á netinu sé framtíðin. En kannski betra að vera ekkert að derra sig á þessum vettvangi. Sjálfur er maður óttalegur slugsi í málvöndun í þessu bloggi sínu.
Þetta finnst mér fyndið. En kannski er ég bara með aulahúmor. Hvað um það - þessi könnun er náttúrulega bara brandari - óháð því hvort maður sé hlyntur eða andvígur ESB-aðild - ég meina að koma fram áróðri í skoðanakönnun - Davíð, svona gerir maður ekki!
Líkt og Mummi og Skúli fór ég líka á Spiderman - á mánudaginn samt. Þar er í hlutverki M.J. hún Kirsten Dunst sem akkúrat er í fjórða sæti á T10 listanum mínum. Hvað um að - Spiderman er góð, þrátt fyrir að vera engin snilld, en bara gjörsamlega akkúrat eins og hún hefði átt að vera. Nokkuð hliðholl myndasögunni og ástarþríhyrningurinn Mary Jane - Peter Parker - Spiderman til staðar og konfliktið nákvæmlega eins og í sögunni. Jamm - ég varð ekki fyrir vonbrigðum.

7.5.02

Hahaha -- stundum er hægrimenn alveg frábærir --- æhh --- sérílagi er Gúndi Svansson alveg met --- ha -- maður gefur þeim einfalt allegórískt dæmi að spá í og þeir misskilja það gjörsamlega hmmm --- það er kannski ekki tilviljun að gaurinn fór í hagfræði!! En flott afleiðsla samt - hah....
Ætli Ólafur Ragnar verði með sjónvarpsþátt þegar hann hættir að vera forseti. Kannski fáum við að fylgjast með á-á-á tali hjá Óla Grís á hverju miðvikudagskvöldi. Það verður svaka fjör. Kannski Dorrit verði með honum, ja nema að hún verði orðin sveitastjóri einhverrstaðar. Jamm hver veit?
Jassko - rakst fyrir tilviljun á þessa mynd af mér og Gullu Teits frá því á fyrsta maÍ. Maður er nú reyndar hálf álkulegur en samt - töff!!!
Ég held að menn ættu að hugsa sig tvisvar (jafnvel þrisvar) um áður en þeir hyggjast fara í málfræði- og stafsetningardeilur við Ármann Jakobsson. Ég meina maðurinn er eini maðurinn í heiminum sem hefur fengið 10 fyrir mastersritgerð í Háskóla Íslands. Fyrir nú utan það er sprenghlægilegt að gagnrýna manninn fyrir málfar og geta svo ekki asnast til að hafa eitt -n- í sekan auk þess sem venja er að skrifa íslenskufræðingur með litlum staf í upphafi!!!!!

6.5.02

Árangur og ekki árangur
Útúrsnúningar og villandi skilaboð Vöku láta ekki standa á sér. Vaka hefur undanfarin ár gagnrýnt Röskvu fyrir flest sem hún aðhafðist í Stúdentaráði. Vaka ganrýndi pólitíska skipan framkvæmdastjóra - Brynjólfur Sævarsson er einmitt lifandi dæmi um pólistískt skipaðan framkvæmdastjóra. Munurinn á Vöku og Röskvu: Röskva var ekkert að fela sína pólitísku skipan og kom heiðarlega fram í þeim efnum, örðu máli gegnir um Vöku.

Vaka hefur oft gert lítið úr árangri í starfi SHÍ og talað um að Röskva hrósi sér sjálfri fyrir ákvarðanir annarra. Röskva hefur iðulega bent á það á móti að þessa ákvarðanir annarra séu teknar í kjölfar þrýstings og ályktana Stúdentaráðs. Enda fer lítið fyrir þessum málflutningi Vökumanna nú þegar ráðherra lagði til að bókaskattur erlendra bóka yrði lækkaður. Já, því nú er ákvörðun ráðherra allt í einu Vöku að þakka og ályktun SHÍ (sem var einmitt lögð til að frumkvæði Röskvu á sínum tíma) spili þar stóra rullu.

Svo gefur Vaka sér plús fyrir að Röskva samþykki eigin tillögur!! Já, þvílíkt afrek!

Jamm, það verður ekki upp á þau logið í Vöku (þó þau geri það stundum sjálf)!
Fyrirsögn
Mér finnst dáldið merkilegt að Björn Bjarnason teljist vinsæll maður. Ég hélt að hélt að hann væri sauður.
Jamms - gömlu konurnar koma einmitt úr staffasafni Háskólans. Þar er um að ræða í flestum tilvikum fyrirverandi starfsfólk skólans og eiginkonur fyrrverandi prófessora. Háskólinn á nefnilega gott safn af afdala starfsfólki í hinum og þessum krókum og kimum. Á milli prófa skilst mér að þær spili félgasvist í Neskirkju.
Þetta er soldið merkilegt. Af einhverjum ástæðum eru allar hljóðskrár spilaðar á tvöföldum hraða á tölvunni minni. Það er svo sem allt í læ en kemur þó í veg fyrir að ég geti hlustað á tónlist til lengdar í vinnunni. Hinsvegar þykir mér stórfurðulegt að ef ég tengist beinum útsendingum útvarpsstöðvanna á netinu eru þær líka spilaðar á tvöföldum hraða. Það sem ég er að spá er að ef þetta er bein útsending og ég heyri hana á tvöföldum hraða - er ég þá ekki farinn að hlusta inn í framtíðina!!!! Jamm - þetta er merkilegur heimur. Annars verð ég nú að segja að Útvarp Saga er skelfilega leiðinlegt útvarpsefni -- nú er ég að hlusta á Flóamarkaðinn - í beinni útsendingu á tvöföldum hraða...
554 2331 --- ryksuga fæst á spottprís - aðeins 231 þúsund