10.10.02
Í dag er alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn. Ég efast um að ég sé allt of geðheilbrigður. Ég er að minnsta kosti ekki alþjóðlegur.
Í það minnsta hafa síðustu dagar verið nokkuð geðveikir. Vinna, nám og vinna og svo styrkumsóknareyðublaðaútfyllingarvinna. Gaf mér þó tíma í gærkveldi að horfa á Bráðavaktina á milli þess sem ég fór yfir verkefni í málvísindum og las í bókinni Semantics.
Talandi að lesa í bókinni Semantics. Það er merkingarmunur á setningunum Hjörtur las bók og Hjörtur las í bók. /í/ er klárlega fónem en eru þessa setningar tvær þá lágmarkspar. Nja - bara að velta þessu upp. Lesendur þurfa ekki að svara - frekar en þeir vilja.