Föstudagur í dag... ekki verra... engu að síður annasöm helgi framundan... þó matarboð í kvöld...
Enn vantar meðleigjanda ... í glæsilega íbúð í vesturbænum... amm áhugasamir geta sent póst
Reit Fjalsi klukkan 14:25
Kokkteilakeppni á miðvikudaginn... Ömmi frændi búinn að bjóða mér á sínum vegum... spurning hvort maður mæti ekki bara .... amm
Reit Fjalsi klukkan 14:23
10.4.03
þrettánþúsundastigesturinn fær verðlaun:
Einn Tröllatópaspakki
Reit Fjalsi klukkan 18:18
Svo virðist sem við Kata Jak séum komin í ritdeilur. Jamm...
Reit Fjalsi klukkan 12:58
9.4.03
Í gær fékk ég þá athugasemd að ég væri öðruvísi. Júmm, ég ætla rétt að vona það. Það er ekki beinlínis heillandi að vera eins. Eða hvað. Nei ég er frekar sáttur við að vera öðruvísi. Þá hlýt ég líka að vera sérstakur! Eða er það kannski ekki það sama? Er ég kannski ekkert sérstakur? Bara öðruvísi svona. Eða er ég kannski bara ekki eins? Þá ekki eins og fólk er flest. Er ég öðurvísi en margur? Kannski er ég hinsegin. Ekki svona heldur hinsegin, svona öðruvísi.
Hvað um það. Ég ætla að leyfa mér að halda í þá meiningu að það sé frekar fínt að vera öðruvísi.
Jamm - stríð er dásamlegt .....................................
Reit Fjalsi klukkan 16:40
Ég rakst fyrir tilviljun á áhugaverða bloggsíðu í dag... nowarblog.org... fjöldinn allur af fólki sem skrifar gegn innrásinni í Írak... margir góðir punktar. Einnig renndi ég yfir síðuna hans Michael Moore... skilaboðin frá í gær eru góð...
Reit Fjalsi klukkan 15:30
það liggur við að maður geti farið að klína nafnbótinni aumingjabloggari á hana Dagnýju.... en ég gef henni sjens í bili
Reit Fjalsi klukkan 13:53
8.4.03
Jamm - getur það verið að óttinn sé drifkraftur voðasamfélagsins í Bandaríkjunum? Bowling for Columbine er vægast sagt áhugaverð ræma.
Meira hef ég ekki um það að segja í bili enda hef ég tamið mér fámælgi í gegnum tíðina.
Reit Fjalsi klukkan 17:25
Samkvæmt samtalí í hádeginu er ný ritsjórnarstefna tekin upp:
léttara hjal
Reit Fjalsi klukkan 16:26
7.4.03
Í kvöld verður farið á bíó.... Bowling for Columbine í boði lifandi.is og Ungra jafnaðarmanna... það verður líklega fjör... á flugvellinum í Baltimore hélt ég lengi á Stupid White Men í þeim hugleiðingum að kaupa hana... af einhverjum ástæðum gerði ég það ekki... líklega vegna blankheita... jamm skítt... en kvöldið verður fjör....
Reit Fjalsi klukkan 16:36
Ég sakna 3. apríl....
Reit Fjalsi klukkan 16:20
Mánudagur... eftir nótt hörmungar og hryllings með uppsölum og köldum svita....
Mánudagur... byrjun á viku... síðustu kennsluviku... úff
Mánudagur... til mæðu
Reit Fjalsi klukkan 16:20
6.4.03
I look inside myself and see my heart is black...
Reit Fjalsi klukkan 16:21
Stöff
Vangaveltur og undarlegar hugmyndir ungs manns í Reykjavík