5.4.02

Föstudagar eru ekki sem verstir - þar sem í dag er föstudagur er stefnan að skella sér á hammara í kvöld ---- )
Jón Stefánsson er kannski ekki mjög feitur - en hann er óskaplega þungur - sérstaklega í stuttu sporunum...
Hmmm
Við Áki fórum og sóttum flugmiðana áðan --- nú styttist í SLC og spennan er gífurleg --- að vísu verðum við lokaðir inni á flugvöllum og ráðstefnusölum allan tímann en það er bara stemmning.
Við María ætluðum svo að bóka ferð til Barcelona í samræmi við netkönnunina - en nokkuð dæmigert - uppselt til Barce svo að við förum bara líklega til London - en það er svo sem fínt því London er flott borg --- og þá er líka hugmyndin að kíkja til Parísar líka svo að tvær flugur verða slegnar í einum grænum.

4.4.02

Þetta er nú meira drasli. Ég blogga og blogga og ekkert birtist hér á síðunum. Maður ætti kannski að fara að finna sér netþjónustu sem maður borgar fyrir. Hingað til hef ég ekki þurft að borga krónu í netsamskipti mín. Jamm - svona er nú heimurinn. Já og bara vika í SLC ---- þetta verður nú eitthvað skrítið --- svo lítur útfyrir að við María séum á leiðinni til Barcelona --- ja nema að einhver hreyfing verði á netkönnunni hér að neðan.
Mikið jövla er fínt að fá sé borgara á Vegamótum. Skellti mér í hádeginu líkt og alla fyrstu fimmtudaga í mánuðum sem hafa -r- jamms - snilldin ein... klikkaði þó á að fá mér bjór í þetta sinn -- geri það bara í kvöld þegar ég skelli mér á kaffihús. Jamms nóg að gera -- svo ætlar maður líka að kíkja á ljóðaupplestur í kvöld... þar ætlar hann pabbi minn ásamt örðum að flytja ljóð fyrir Palestínu. Fimmtudagar eru góðir dagar.
Góðan daginn - ég tók að venju tvistinn í vinnuna í morgun - einhver nýr gutti var að keyra og var greinilega ekki alveg viss á bremsunni - negldi alltaf niður við hver gatnamót svo að ég og gamlafólkið hentumst fram og aftur í sætunum alla leiðina. Svo þegar ein gamla konan var á leið út á Vesturgötunni negldi hann svo niður að greyið kerlingin hentist í gólfið. Í almennilegheitum mínum stökk ég þegar til hjálpar og var eithvað að reyna að aðstoða hana á fætur en gama konan í gólfinu brást illa við og barði mig með stafnum sínum. "þetta er nú meiri endemis dónaskapurinn" sagði hún á meðan hún skreið á lappir og horfði á mig ásakandi. Ég horfði hissa á kerlu enda ætlaði ég bara að hjálpa. "Þið ættuð að læra á þessa bíla áður en þið farið að aka á þeim" gaggaði hún á leiðinni út. Jamm - á eftir stóð ég - orðinn strætóbílstjóri fyrir misskilning og vondur í þokkabót. Og strætisvagninn hélt af stað með þvílíkum látum að ég hentist í gólfið eins og gömul kerling. Ég vona að þetta hafi verið afleysingabílstjóri.

3.4.02

Ég var semsagt að skíða á Dalvík um páskana ásamt frægafólkinu. Svo virðist sem selebin á Íslandi fari til Dalvíkur í páskafríinu. Í skíðabrekkunum hitti ég -> Jón Gnarr, Halldóru Geirharðs, Benedikt Erlings, Jón Ólafs, Ragnar Skjálfta og fleiri.
Nú hefjast tilraunir með blogBuddy - skyldi þetta heppnast?
FM-gellurnar eru lagðar af stað. Jamm - Fanney og Magga eru að fara í eitthvert snilldarferðalag með Síberíuhraðlestinni og ætla að leyfa okkur aumingjunum sem eftir sitjum að fylgjast með. Jamm - þetta verður ábyggilega stuð hjá þeim stöllum.
Talandi um ferðalag. Þessa stundina er 50/50 hvort við maría förum til Barcelona eða förum bara alls ekki - amk samkvæmt könnuninni.
Jamms - til að auðvelda okkur Maríu valið um sumarleyfisstað hefur verið útbúin net-kosning hér á síðunni. Þannig munum við María komast í frí með ykkar hjálp. Kjóstu
Kominn í bæinn eftir páskaferð í Svarfaðardal. Gott frí og loksins komst maður á snjóbretti. nú er bara vika í Salt Lake og svo fer að nálgast maí. Og þá fer að styttast í sumarferðalagið okkar Maríu. Okkur stendur til boða að fara til London, Parísar eða Barcelona. Nú er bara spurningin - hvert eigum við að fara?