17.5.03

Datt ekki í það í gær. Merkilegt nokk. Vaknaði samt í morgun með meiri vanlíðan en flesta aðra laugardaga. Jamm... ef ekki þynnka þá heilhveitis kvef.
Engu að síður tekinn góður dagur á bókhlöðunni í kompaníi fornra og nýrra orðsifjabóka ásamt nettu kaffispjalli við exið! Amm... það held ég nú.

Kvöldið: Líklega GUÐFAÐIRINN II

ójá

16.5.03

Kvefið að kveðja... Hugmyndin var að eyða föstudagskvöldi í þjóðarbókhlöðunni. En nei, þjóðarbókhlaðan lokar klukkan sjö á föstudagskvöldum... það verður því lítið úr ritgerðarsmíð í kvöld... en kannski þess í stað GUÐFAÐIRINN í sjónvarpinu.

veiveivei
Nú er Þórdís stödd hér á skrifstofunni að tala um tennur og tannhirðu. Jamm... það er fátt óviðkomandi hugvísindastofnun. Af því tilefni fær Þórdís línk á sig hér til hliðar. Húrra fyrir því.

15.5.03

Nú ætlar bölvað kvefið að spilla fyrir vinnu og ritgerðasmíð... ég neyddist til að hverfa af þjóðdeildinni í gær sökum nefrennslis... þegar ég var búinn að sjúga upp í nefnið svona fimmtíu sinnu og hljóta að launum ill augu nærstaddra taldi ég nóg komið... það á kannski vel við en ég er einmitt að skrifa rigerð um orðið kuldahrollur... jamm ... ég upplifði einmitt slíkan hroll í nótt ... á milli svitakasta...

það er bara að vona að maður verði búinn að ná þessum fjanda úr sér áður en maður heldur til Spánar....

jamm ---- og já

14.5.03

Ég vil nú samt óska henni Dössu minni til lukku með þingsætið. Það er ágætt að vita af amk einum almennilegum framsóknarmanni á þingi
Óbreytt ástand...

Ég vil þakka öllum þeim sem kusu framsóknarflokkinn í þessum kosningum! Jamm --- þið eruð nú aldeilis sniðug!

Ég sagði það og stend við það... ef ríkisstjórnin heldur velli þá flyt ég burt af þessu skeri.... jamm og já...

92 dagar í viðbót og svo fer ég burt... þetta er náttúrulega óþolandi!
Þorri þokkalegi bloggar af sannri list. Það er gaman að lesa um tilveru snáðans í Barcelona. En brátt þarf ég ekki að lesa blogg til að fá innsýn inn í líf þokkalega. Því eftir viku verð kominn til hans og Tótu frænku á gyllt stræti Barcelonaborgar, klæddur kufli einum fata. Því í Barcelonaborg gengur fólk ekki í buxum eða bolum, onei.
Strákurinn skellti sér í veiðiferð á sunnudag með Kolbeini... Hann krækti í einn vænan fisk og hressilegt kvef sem náði að keyra angann niður í sæng í allan gærdag... jamm... en í kvöld verður fiskur í matinn... jamm og já...