5.9.02

Sem sagt - búinn að fá skrifstofu á Nýja Garði. Það er yndislegt. Svo er ég líka byrjaður aftur námi. Það er í Árnagarði. Svo ég er bara 30 sek úr vinnunni í skólann. Það er hentugt. Nú er bara að bíða eftir að tölvan mín komist í gagnið. Þeir eru svo sem ekkert að flýta sér hjá Reiknistofnun. En sum sé. Nýi Garður: Ælovitt!

Svo er ég líka farinn að kunna svo vel við bleika litinn!
Fluttur í Nýja Garð --- I'm home!!!!!!

3.9.02

Ég á afmæli í dag - ég á afmæli í dag - ég á afmæli ég sjálfur - ég á afmæli í dag. Af því tilefni er síðan í sérstökum hátíðarlitum í dag.
Tekið er á móti hamingjuóskum hér.