24.1.03

Læt þetta nægja af dissi í dag...
Heyrðu jú, það eru víst menningardagar í gangi. Hvernig læt ég, auðvitað er eitthvað að gerast hjá SHí --- svo eru líka að koma kosningar. Hvur veit nema að það fari þá eitthvað verulega sniðugt að gerast hjá SHÍ.
Eitthvað fóru nú þessir menningardagar framhjá mér. Svo sem ekki skrýtið. Ég er í Árnagarði og Nýja garði flesta daga. Sá samt eitthvað fólk vera að flippa á bílastæðinu í dag. Ætli það geti ekki kallast menning!

Leiðinlegt hvað student.is er illa uppfært. Þarna er þessi fíni vettvangur til að kynna starfsemi Stúdentaráðs og hann bara ekkert notaður. Tja.. nema að það sé bara ekkert að gerast hjá SHÍ???

23.1.03

Jess! Loksins skil ég indóevrópsk hljóðskipti. Og (hér brýt ég þá meginreglu mína að hefja ekki málsgrein á og) það merkilega er að indóevrópsk hljóðskipti eru ekki flókin. Spurningin er: Er líf mitt bættara eftir að ég skildi indóevrópsk hljóðskipti? Jú, það held ég!

22.1.03

Mummi virðist ekki skilja kjarna hugmynda minna. Það er nokkuð sorglegt!

21.1.03

Aldrei hefi ég skilið hví hægrimenn eru stríðsglaðari en aðrir. Maður hlýtur að fara að hallast að skýringum á borð við illt innræti. Ég læt það þó vera í bili og held áfram að skilja það ekki. Enda maður sem vill trúa á mannkosti en ekki mannlesti.
Jú, ég verð að hryggja Mumma með því að líklega verður lítið úr heimsókn minni til hans í mars. Kalíforníuferðin er dottin uppfyrir og eftir stendur Baltimore ein. Viðkoma hjá Mumma virðist því nokkuð langsótt dæmi! En hvur veit, máski gerast kraptaverkin!

20.1.03

10.

og þá... síðasta færslan í dag...

Um hvað ætti hún svo að vera.

Bíðið meðan ég hugsa málið
9. líklega
8. er stefnan tekin á 10?
7. Ekki skil ég enn hví fólk les þessa síðu. Er það í von um að lesa eitthvað af viti.

onei -- ekki hér krakkar mínir

Ekki í okkar nafni
5. (í öfugri röð)
Mikið geta stríðssinnar farið í taugarnar á mér. Jú, mikil ósköp. Þá er líka ágætt að góðir menn séu til staðar til að taka þá í bakaríið!
4. Sem sagt minn í framboði. Ekki veit ég þó hvort verði kosið. Hvað veit ég? Öngu að síður er stefnan tekin á landsþing. Kominn er tími á velferðarsjónarmið hjá ungum jafnaðarmönnum. Mottó: Burt með hægrikratana --- vík vík!+

Selfoss... hvað er það annað er Selfyssingar með træbaltattú og strípur? Jú, einstaka skyldmenni. Á maður þá að krefjast gistingar hjá þeim? Sjáum til!
3.

Kannski ég hætti við málvísindin og fari í mastersnám í átökum og varanlegum friði. Hvað verður maður þá? Varanlegsfriðsfræðingur??
Hvað um það - er enn að lesa um sikileyinginn... það þykir mér gaman... er ég löngu hættur að nenna þessu bloggi... við því býst ég... er það kannski bara vegna þess að ég hefi svo ótalmargt að gera. Jú, líklega

2.

Kvöldið: Jú, Bráðavaktin.. þökk Ernu... mánudagur + bráðavakt - gerir að verkum: aðeins dagur á milli vakta. Hvílík dásemd!

Hvernig hefur maður orðið?